Hermann Veigar fæddist í Reykjavík klukkan 00:33 aðfaranótt laugardagsins 15. janúar 2005. Þar sem hann snéri nefinu upp þá tók langan tíma að koma honum í heiminn og var hann á endanum tekinn með sogklukkum. Hermann Veigar var sem betur fer harður af sér og var fljótur að jafna sig eftir átökin. Hann var 15 merkur og 53 sentimetrar að lengd.
Sigurður Karl (Siggi Kalli) fæddist klukkan 8:45 í Horsens, Danmörku þann 2. júlí 2008. Siggi Kalli var tekinn með fyrirfram ákveðnum keisara á 39. viku meðgöngu en þar sem hann sat fastur í maganum þá var hann líka tekinn með sogklukku, þótt ótrúlegt sé. Eftir átökin var Siggi Kalli mjög slappur og var fluttur með sjúkrabíl til Randers þar sem hann var á vökudeild í einn sólarhring. Sem betur fer náði hann sér fljótt. Siggi Kalli var um 16 merkur og 55 sentimetrar.
Við bræðurnir erum mjög líkir og finnst mömmu og pabba við vera fallegustu og bestu bræður í öllum heiminum.
Mamma okkar heitir Berta María og pabbi okkar Ragnar og búum við í Hafnarfirði


Hermann Veigar:
Steingeitin
22. desember - 19. janúar
Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.
Sigurður Karl:
Krabbi
22. júní - 22. júlí
Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.
------------------------------------------------------------
FALLEG SAGA:
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og er það nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,mömmu"
------------------------------------------------------------
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.